Gætum tungunnar
Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.
Höfundur: Margir höfundar
Vorhefti Skírnis - Tímarits Hins íslenska bókmenntafélags 2008
Hvernig eru málverk fölsuð?
Fyrir nokkrum árum var varla um annað meira rætt í íslenskum listheimi en „stóra málverkafölsunarmálið“. Það kom mörgum á óvart þegar sakborningar voru sýknaðir í Hæstarétti og eflaust hafa sumir spurt sig hvort rannsóknum á fölsununum hafi verið ábótavant. Þeir sem einna mest unnu að þeim, Viktor Smári Sæmundsson forvörður og Sigurður Jakobsson efnafræðingur, gera nú – í fyrsta sinn á prenti – grein fyrir aðferðum sínum og niðurstöðum í grein í vorhefti Skírnis. Af því tilefni birtist í Skírni í fyrsta sinn litörk, svo lesendur geti betur glöggvað sig á skýringarmyndum sem fylgja greininni. Á heimasíðu Skírnis, www.skirnir.is, er jafnframt að finna tengil á vefsíðu þar sem sjá má myndir af verkunum sem fjallað er um í greininni og komu fyrir dóm.
Meðal annars efnis í Skírni er hugleiðing Páls Skúlasonar um menningu og markað þar sem Páll styðst við hugmyndir Sigurðar Nordals í gagnrýni sinni á þá taumlausu markaðshyggju, sem hann telur hafa verið ríkjandi hérlendis undanfarin ár. Í Skírni er þess jafnframt minnst að 100 ár eru liðin frá fæðingu Steins Steinarr og skrifar Kristín Þórarinsdóttir ítarlega um Tímann og vatnið, en hún byggir m.a. á óbirtu efni úr fórum frænku sinnar og ekkju Steins, Ásthildar Björnsdóttur. Jón Karl Helgason birtir ritgerð um Vikivaka, sérstæðasta verk Gunnars Gunnarssonar, og Ásta Kristín Benediktsdóttir skrifar um Dægurvísu Jakobínu Sigurðardóttur. Í ritröð Skírnis, þar sem skáld skrifa um skáld, ritar Sigurður A. Magnússon um Níkos Kazantzakis. Gunnar Karlsson blandar sér í umræðu um póstmódernisma með greininni „Sagnfræði og sannleikur“, og Gísli Sigurðsson skrifar hugleiðingu um samband ritunar og munnlegrar hefðar út frá sögunni um Guðmund ríka.
Í Skírnismálum má lesa andsvar Stefáns Snævarr við grein Jóns Sigurðssonar í síðasta hefti um hnattvæðinguna og að beiðni ritstjóra skrifa Auðunn Arnórsson og Jóhanna Kristjónsdóttir hvort sína hugleiðinguna um Ísland og íslam, í tilefni af útgáfu nýrra bóka. Bókmenntaþáttur Skírnis er helgaður Matthíasi Johannessen sem birtir þar fimm ný ljóð, en ritdóma skrifa þau Einar Már Jónsson, um nýja útgáfu Sverris sögu, og Beth Kephart, um Aldingarð Ólafs Jóhanns Ólafssonar.
Myndlistarmaður Skírnis er Hreinn Friðfinnsson, sem Eva Heisler skrifar um, og hann er einnig höfundur kápumyndarinnar.
Vorhefti Skírnis er 280 bls. að stærð og markar upphaf 182. árgangs.
ISBN númer:
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 280
Til baka
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is
