Gætum tungunnar
Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.
Höfundur: Þeófrastos
Íslensk þýðing: Gottskálk Þór Jensson

Smelltu fyrir stærri mynd
Inngang ritar Gottskálk Þór Jensson.
Gríski heimspekingurinn Þeófrastos var uppi á annarri og þriðju öld fyrir Krist. Hann nam við Akademíu Platóns og er talinn hafa fylgt Aristótelesi á ferðum sínum áður en hann varð fyrsti skólastjóri Gangnaskólans í Aþenu. Honum er eignaður mikill fjöldi rita um ýmis heimspekileg og vísindaleg efni en flest þeirra hafa glatast. Manngerðirnar, frægasta rit hans hefur þó verið þekkt og lesið allt frá fornöld og náði raunar mestum vinsædum á 17. öld þegar stælingar á því og ýmis afbrigði sama forms urðu að sérstakri bókmenntagrein hjá frönskum, þýskum og enskum höfundum.
Manngerðirnar eru líka sérstaklega frumlegt verk. Þeófrastos lýsir í örstuttum greinum þrjátíu ámælisverðum sérkennum í háttum manna en hvorki með aðferðum siðfræði eða mælskufræði, sem iðulega fjölluðu þó um sömu eiginleika í fornöld, heldur skilgreinir hann hvert sérkenni fyrir sig með eins konar orðskýringu og rekur dæmi af hegðun til dæmis nískupúkans eða hins meinfýsna í hversdagslegum aðstæðum. Aðrar manngerðir sem verða fyrir barðinu á Þeófrastosi eru meðal annars ólíkindatólið, smjaðrarinn, smásálin, dindilmennið, hrokagikkurinn og fruntinn. Hlutlægar lýsingar Þeófrastosar á tilsvörum manngerðanna og samskiptum þeirra við annað fólk fá hverja og eina til að standa ljóslifandi fyrir hugskotsjónum lesandans og munu margir kannast við ýmislegt í fari persónanna sem svo er lýst. Verkið er því á köflum óborganlega fyndið, sem án efa skýrir vinsældir þess á síðari tímum, en fyrir þessa útgáfu hefur þýðandi gert ítarlegar skýringar um þær sérgrísku aðstæður sem Þeófrastos vísar stundum til. Bókina prýða að auki teikningar úr enskri útgáfu Manngerðanna frá 19. öld. Þá eru birt í viðauka „Æviþáttur Þeófrastosar” úr Lífi og skoðunum merkra heimspekinga eftir Díogenes Laertíos og skólaþýðing úr Bessastaðaskóla á tíu manngerðum. Inngangur þýðandans Gottskálks Þórs Jenssonar um verkið og ævi höfundar er hinn fróðlegasti.
Fyrsta útgáfa Manngerða kom út árið 2000, önnur útgáfa 2003 og sú þriðja 2007.
Viðurkenning fyrir góðan námsárangur á samræmdum prófum 10. bekkjar.
Menntamálaráðuneytið og Bókmenntafélagið gerðu með sér samkomulag um veitingu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í samræmdum prófum 10. bekkjar á síðasta ári og nú í ár og voru send út að því tilefni yfir 130 eintök af bókinni Manngerðir til allra grunnskóla landsins hvort ár. Með því að velja þetta sígilda og ríflega 2300 ára rit Manngerðir til þessarar viðurkenningar, er markmiðið að vekja athygli á því að ekkert er nýtt undir sólinni, margur maðurinn er eins og hann er – en hins vegar megi læra af því sem miður fer og leita leiða til að bæta samfélag manna.
ISBN númer: 978-9979-66-201-3
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 109
Til baka
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is