Þú ert hér » Bókaflokkar

Netkynningar


Gætum tungunnar

Bókaflokkar

Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.

Um trúarbrögðin
Höfundur: Friedrich Schleiermacher
Íslensk þýðing: Jón Árni Jónsson


Smelltu fyrir stærri mynd

Inngang ritar Sigurjón Árni Eyjólfsson.

 

Stundum hefur þýzki guðfræðingurinn og heimspekingurinn Friedrich Schleiermacher verið nefndur faðir nútíma mótmælendaguðfræði. Einnig hefur hann verið álitinn kirkjufaðir nítjándu aldar en frjálslynda guðfræðin, sem svo er nefnd, var iðkuð undir hans formerkjum. Að sama skapi var guðfræði tuttugustu aldar brennd nafni hans og sumar áhrifamestu hugmyndir seinni tíma guðfræðinga, s.s. Karls Barth, voru að miklu leyti tilraun til að vinna gegn áhrifum Schleiermachers. Einnig er Schleiermacher vel þekktur fyrir þýðingu sína á heildarverki Platons, sem hann varði fjölda ára í að ljúka, en þýðingin er lesin enn í dag.

 

Um trúarbrögðin: Ræður handa menntamönnum sem fyrirlíta þau er eitt þekktasta rit Schleiermachers. Með þessu verki blandaði hann sér í umræðu um trúarheimspeki sem stóð í blóma á þessum tíma. Örfáum árum áður höfðu Johan Gottlieb Fichte og Immanuel Kant skrifað merk rit um eðli trúarinnar, og Schleiermacher brást við umfjöllunum þeirra. Kant skýrði trúarbrögð, í takt við anda upplýsingarinnar, sem kerfi siðaboða og frumspekilegra kennisetninga. En Schleiermacher leit svo á að þessi skilningur á trú byggðist á kaldri og tilfinningalausri skynsemishyggju. Í Um trúarbrögðin ræðst hann gegn þessum hugmyndum með því að skilgreina trúarbrögð með tilvísun í innstu upplifanir og tilfinningar mannsins. Trú tilheyrir kjarna manneskjunnar og snertir innsta veruleika hennar. Hin einstaklingsbundna trúarreynsla er hafin til vegs og virðingar. Þetta er upphaf hinnar sígildu gagnrýni rómantísku stefnunnar á kalda rökhyggju upplýsingarinnar. Schleiermacher greinir með áhrifamiklum hætti á milli frumspeki og siðfræði annars vegar og trúarbragða hins vegar: hið fyrra skiptir veruleikanum niður í smæstu einingar og flokka, en trúin beinist að heildinni; „trúarbrögð eru skilningur á og smekkur fyrir óendanleikanum“. Og fyrst trúin snertir sjálfan kjarna mannlegrar tilveru og verður ekki njörvuð niður í eitthvert frumspeki- eða siðakerfi, þá trúarupplifunin nauðsynleg hinum trúaða. Fólk verður ekki sannfært um sannleikann í trúarbrögðum með sama hætti og það ákveður að samþykkja eitthvert kenningakerfi, trúarreynslan sjálf vegur þyngst. Trúartilfinningin mótar alla persónu mannsins. En Schleiermacher leggur einnig mikla áherzlu á að maðurinn hljóti að rækta trú sína í samfélagi við aðra.

 

Hugsun Schleiermachers hefur haft gífurleg áhrif á hugmyndir manna um trú og trúarheimspeki. Hér birtist kjarni þessara mikilvægu hugmynda hans í læsilegri þýðingu Jóns Árna Jónssonar.

 

Sigurjón Árni Eyjólfsson ritar góðan inngang að verkinu sem útskýrir megindrættina í hugsun Schleiermachers og veitir yfirlit yfir efni Um trúarbragðanna. Einnig gerir hann grein fyrir ævi höfundarins í stuttu máli.

 

 






ISBN númer: 978-9979-66-216-7
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 324


Til baka
Opið mánudaga til föstudaga frá 10:00 til 16:00
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is