Þú ert hér » Bókaflokkar

Netkynningar


Gætum tungunnar

Bókaflokkar

Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.

Stjórnmál og bókmenntir
Höfundur: George Orwell
Íslensk þýðing: Uggi Jónsson


Smelltu fyrir stærri mynd

Sú listgrein sem George Orwell lagði mesta rækt við var að skrifa ritgerðir þar sem hann hugsar frjálslega í rituðu máli um stjórnmál, bókmenntir, froskdýr, jólin, varðelda, kvöldklæðnað, ókurteisi, enska matargerð, enska veðráttu, tóbaksbúðir, drengjablöð, hengingaraðferðir, vináttulandsleiki, vorkomuna, að pissa undir, húsnæði og skipulag íbúðahverfa, verðsamanburð á vindlingum og bókum, fyrirmyndarpöbbinn, skotgrafahernað, valdadýrkun, friðarsinna, hrylling tilverunnar, kennara, lífsleiða, ljúfengt te, einkaskóla, ævisögur, starfskjör ritdómara, ensk morð, skemmtigarða og heilsulindir, hungursneyð, blóm og trjágróður, hlutlæga blaðamennsku og forneskjulegar lækningaaðferðir svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægi ritgerða, líkt og vægi frjálsrar hugsunar, munu fáir neita, en oft hefur hún fallið í skugga skáldsögunnar sem notið hefur meiri lýðhylli.






ISBN númer: 978-9979-66-248-8
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 328


Til baka
Opið mánudaga til föstudaga frá 10:00 til 16:00
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is