Gætum tungunnar
Elsta félag og bókaforlag á Íslandi Hið íslenzka bókmenntafélag var stofnað árið 1816 og hefur starfað óslitið síðan. Það tók við hlutverki Hins íslenzka lærdómslistafélags sem stofnað hafði verið 1779, en starfsemi þess lá niðri í þann mund sem Bókmenntafélagið var stofnað. Voru félögin formlega sameinuð árið 1818. Þess eru fá dæmi meðal annarra þjóða og einsdæmi hér á landi að frjálst félag geti státað af slíkri hefð. Stofnun þess olli á sínum tíma þáttaskilum í viðhorfi manna til íslenskrar tungu og bókmennta síðari alda.
Menntir og menning
Á öðrum áratug 19. aldar var
svo komið að áhugi manna beindist allur að fornu máli og menningu
Íslendinga, en hvorki var hirt um nútíð né framtíð, þannig að svo
virtist sem íslenskan bættist senn í hóp hinna dauðu tungumála eins og
t.d. engilsaxneska. Allt menntalíf og fræðastarfsemi stóð höllum fæti
og bókaútgáfa var afar fátækleg. Við stofnun Bókmenntafélagsins varð
gagnger breyting. Grundvallarstefna þess var að reisa við sjálfstæðar
menntir og menningu á Íslandi undir forystu Íslendinga sjálfra, þannig
að íslensk þjóðmenning yrði virkt afl í sókn þjóðarinnar til andlegra
og efnalegra framfara.
Fyrstu skrefin
Bókmenntafélagið hófst þegar á
fyrsta starfsári handa um útgáfu bóka og tímarita og hefur sú starfsemi
verið meginviðfangsefni þess síðan. Sturlunga saga var fyrsta ritið, en
Árbækur Espólíns fylgdu eftir og með þeim eignaðist þjóðin í fyrsta
sinn samfellda sögu sína. Jafnframt var hafin útgáfa tímaritsins
Íslenzk sagnablöð og síðar Skírnis sem hefur komið út síðan
1827 og er elst tímarita á Norðurlöndum. Þessi útgáfa er nokkuð táknræn
fyrir stefnu félagsins - annars vegar að treysta böndin til fortíðar og
hins vegar að veita erlendum straumum til landsins og laga þá að hefðum
og hugsunarhætti Íslendinga. Skírnir var framan af fréttamiðill, en fékk síðar hlutverk bókmennta- og fræðatímarits.
Sjálfstæðisbaráttan - skerfur Bókmenntafélagsins
Með
starfsemi sinni átti félagið drjúgan þátt í að undirbúa jarðveginn
fyrir sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar sem talin er hefjast 1831, en þá
hafði félagið starfað í 15 ár, tengt þjóðina fastari böndum við sögu
sína en áður hafði verið gert og miðlað erlendum menningarstraumum til
þjóðarinnar. Hefur þessu hlutverki félagsins verið minni gaumur gefinn
en skyldi.
Fræðafélag - brautryðjandinn
Bókmenntafélagið er
fræðafélag þótt það sé kennt við bókmenntir. Við stofnun félagsins
merkti orðið bókmenntir hvers konar menntir sem bundnar voru við bækur
og þá ekki síður fræði en skáldskap. Auk bókaútgáfu sinnti félagið
margs konar annarri vísinda- og fræðastarfsemi. Það hafði forgöngu um
mælingu Íslands og útgáfu fyrsta uppdráttar landsins sem telja má
nokkurn veginn réttan og kenndur er við Björn Gunnlaugsson. Það
annaðist veðurathuganir fyrir Vísindafélagið danska, lét safna efni í
mikla Íslandslýsingu sem var að vísu aldrei gefin út, en efnissöfnun
þessi hefur þó síðar komið að drjúgu gagni. Það hafði forgöngu um
stofnun Landsbókasafns Íslands árið 1818 og kom upp miklu handritasafni
sem nú er varðveitt á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Þá
hafði félagið frumkvæði að útgáfu sögulegra heimilda síðari alda, m.a.
með því að hrinda af stað útgáfu Íslenzks fornbréfasafns, frumkvæði að
útgáfu laga með ritröðinni Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands og
hagskýrslna með útgáfu Skýrslna um landshagi á Íslandi. Hér er aðeins
stiklað á stóru um verkefni félagsins á síðustu öld og í byrjun
þessarar. Um miðja öldina dró nokkuð úr starfsemi félagsins, en upp úr
1970 tók hún að eflast að nýju. Skal nú gerð nokkur grein fyrir henni,
en hún hefur eingöngu verið bundin við bókaútgáfu. Bækur félagsins hafa
fjallað um bókmenntir, listir, skáldskap, hagfræði, lögfræði, sálfræði,
sagnfræði og fornleifafræði, og ekki má gleyma einum viðamesta og
þekktasta flokki bóka, Lærdómsrita Bókmenntafélagsins, auk útgáfu Skírnis.
Til styrktar íslenskri menningu
Umræður um
viðgang íslenskrar tungu eru einatt á þann veg að lýst er áhyggjum af
framtíð hennar. Með útgáfustarfi sínu leitast Bókmenntafélagið við að
leggja fram ofurlítinn skerf til viðhalds tungunni og styrktar
íslenskri menningarhefð á sviðum sem aðrir útgefendur sinna lítt eða
ekki, enda ekki á markaðinn að treysta. Hér er á hinn bóginn verið að
hugsa til fjarlægari framtíðar. Fræðirit - á brattann að sækja Útgáfa
markverðra fræðirita á mjög á brattann að sækja vegna yfirþyrmandi
framboðs á afþreyingarefni, þ.á.m. í bókum, blöðum og tímaritum og
annars konar margmiðlun.
Bókmenntafélagið biður þá sem þetta lesa að íhuga hvernig umhorfs yrði ef útgáfa íslenskra fræðirita legðist af eða verulega drægi úr henni. Jafnframt skal minnt á að í öllum nálægum löndum er útgáfa vandaðra fræðirita styrkt veglega.
Ljósritun - vandi Bókmenntafélagsins
Rit
félagsins eru talsvert notuð í skólum og mætti ætla að það væri nokkur
fjárhagsleg lyftistöng. En þá bregður svo við að nemendur - og jafnvel
einnig kennarar - kjósa fremur að ljósrita úr þeim en kaupa þau. Hefur
félagið orðið illa úti af þessum sökum, ekki síst hefur dregið úr
kaupum á Skírni vegna ljósritunar einstakra greina og fjölföldunar
þeirra. Tapar félagið árlega stórfé vegna þessarar iðju sem oftast er
ólögleg. Jafnframt leggur það skólum landsins til ókeypis kennsluefni.
Bókmenntafélagið öllum opið
Bókmenntafélagið er
ekki eingöngu öllum opið, hvar í stétt sem menn standa, heldur eru
allir velkomnir sem styðja vilja þau markmið sem félagið vinnur að -
útgáfu markverðra fræðirita á sem flestum sviðum. Félagsmenn eru
jafnframt áskrifendur að Skírni - Tímariti Hins íslenzka bókmenntafélags - sem kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Árgjald greiðist við útkomu
hvors heftis, um 2500 krónur, eða samtals um 5000 krónur á ári. Skírnir er tvímælalaust eitt þekktasta og virtasta tímarit Íslendinga og fá rit
sem oftar er vitnað til í fræðilegri umræðu, en það gerir jafnframt
nokkrar kröfur til lesenda sinna. Jafnframt fá félagsmenn 20% afslátt
af verði rita félagsins, eins og það birtist í verðskrá - aðrir fá 10%
afslátt.
Lækjargata 4
Félagið hefur eignast húsnæði í
Lækjargötu 4 og á þar hálfa jarðhæð og kjallara. Væri mjög æskilegt að
stækka hlut félagsins til þess að það geti eflt starfsemi sína. Er hér
höfð í huga nauðsyn þess að geta boðið fræðimönnum sem vinna fyrir
félagið upp á eitthvert afdrep við störf sín, t.d. frágang handrita,
prófarkalestur, að ekki sé minnst á frekari starfsaðstöðu.
Framtíðarsýn
Þá væri einnig félaginu til
framdráttar að færa út kvíarnar með funda- og fyrirlestrahaldi,
námskeiðum og annars konar fræðslustarfsemi í tengslum við útgáfu rita.
Talsverð eftirspurn er eftir slíku og þar hefur félagið hlutverki að
gegna. Fjarri fer að æskilegt sé að öll fræðslu- og menningarstarfsemi
sé á vegum ríkisins. Sjálfstæðar menningarstofnanir sem ekki hafa það
að aðalmarkmiði að auka efni sín gegna mjög mikilvægu hlutverki á þessu
sviði og eru nauðsynlegt mótvægi við umsvif ríkisins á þessu sviði. En
allt eru þetta fjarlægir draumar, a.m.k. eins og sakir standa.
Stuðningur félagsmanna
Mikil nauðsyn er að félagsmönnum fjölgi til þess að haldið verði uppi viðunanlegri útgáfu bóka og staða Skírnis styrkist. Vonandi telja félagsmenn sig hafa sitthvað til félagsins að sækja en mega jafnframt líta á sig sem styrktarmenn Skírnis og annarrar útgáfustarfsemi.
Um vefsíðuna
Vefsíðan er knúin PHP staðlinum og eru allar upplýsingar geymdar í MySQL gagnagrunni. Vefuinn kemur best út í Firefox 2-3. Allar ábendingar eða spurningar varðandi vefinn má senda á vefstjori@hib.is.
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is