Gætum tungunnar
Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.
Höfundur: Margir höfundar
Hausthefti Skírnis, 182. árgangs, geymir fjölda forvitnilegra ritgerða sem spanna efni allt frá Freyju-átrúnaði til forna fram til bankahrunsins í síðasta mánuði. Ítarlegustu ritgerðirnar eru eftir Halldór Björnsson, formann vísindanefndar um loftslagsbreytingar, sem skrifar um gróðurhúsaáhrif og kenningar um loftslagsbreytingar af manna völdum, og Svein Einarsson sem skrifar grein um leikhúsmanninn Guðmund Kamban og fylgja greininni tvö bréf sem Kamban skrifaði Soffíu Guðlaugsdóttur leikkonu. Fleiri greinar fjalla um bókmenntaleg efni: Páll Bjarnason varpar nýju ljósi á tengsl Jónasar Hallgrímssonar og Tómasar Sæmundssonar, Berglind Gunnarsdóttir greinir ljóð Halldóru B. Björnsson og feðgarnir Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson rekja viðtökur T.S. Eliot á Íslandi og ræða helstu þýðingar á verkum hans. Nokkrar ritgerðir fjalla svo um endurskoðun sjálfsmyndar okkar fyrr og nú: Ingunn Ásdísardóttir ræðir kenningar um hugsanlegan átrúnað á Freyju meðal íslenskra landsnámsmanna, Ármann Jakobsson og Hanna Björg Sigurjónsdóttir skrifa um umskiptinga og birtingarmyndir fjötlunar í þjóðsögum og nútímanum en Guðni Th. Jóhannesson ræðir goðsagnir Íslendinga um þorskastríðin í grein sem er líkleg til að vekja andsvör.
Að undanförnu hafa ýmsir höfundar, eins og Páll Skúlason, gagnrýnt óhefta markaðshyggju í Skírni. Í Skírnismálum, vettvangi tímaritsins fyrir ritdeilur, svarar Hannes Hólmsteinn Gissurarson þessum höfundum með grein sem hann nefnir „Ósigur frjálshyggjunnar?“ en Þorvaldur Gylfason ræðir hrun íslenska fjármálakerfisins í sögulegu samhengi í greininni „Ætlar linkindin aldrei að líða hjá?“.
Þórarinn Eldjárn birtir tvö ný ljóð í Skírni, Gunnþórunn Guðmundsdóttir ritar um nýleg íslensk æviskrif og Þorleifur Hauksson gerir athugasemd við ritdóm Einars Más Jónssonar um útgáfu Þorleifs á Sverris sögu. Myndlistarmaður Skírnis og þar með höfundur forsíðumyndar er Hlynur Hallsson og fjallar Gunnar J. Árnason um verk hans.
Hausthefti Skírnis er 250 blaðsíður að stærð. Ritstjóri er Halldór Guðmundsson.
ISBN númer:
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 250
Til baka
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is
