Þú ert hér » Bókaflokkar

Gætum tungunnar

Bókaflokkar

Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.

Kirkjur Íslands - 18. og 19. bindi - Reykjavíkurprófastsdæmi
Höfundur: Margir höfundar


Smelltu fyrir stærri mynd

 

KIRKJUR ÍSLANDS er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi, þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum.

 

Bókaflokkurinn opnar sýn inn í mikilvægan þátt í menningarsögu okkar Íslendinga heima í héraði, því kirkjan er ekki aðeins musteri trúar, heldur einnig sýnileg táknmynd þess besta í byggingar- og listasögu þjóðarinnar á hverjum tíma. – Þetta eru glæsilegar listaverkabækur.

 

Hér er fjallað um hinar sjö friðuðu kirkjur í Reykjavíkurprófastsdæmum: Dómkirkjunni, Fríkirkjunni og Kristskirkju í Landakoti, ásamt Laugarneskirkju, Neskirkju, Safnkirkjunni í Árbæ og Viðeyjarkirkju. Höfundar eru séra Þórir Stephensen, sagnfræðingarnir Gerður Róbertsdóttir og Gunnar F. Guðmundsson, Drífa Kristín Þrastardóttir sagn- og listfræðingur, Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur og arkitektarnir Pétur H. Ármannsson og Þorsteinn Gunnarsson.

 

Dómkirkjan er með elstu kirkjum landsins, upphaflega teiknuð af danska húsameistaranum Andreas Kirkerup og reist 1787-1796. Á árunum 1847-1848 var hún hækkuð og byggð við hana kór og forkirkja eftir uppdráttum Lauritz A. Winstrup sem fyrstur danskra húsameistara heimsótti Ísland til að ráðslaga um framkvæmdir. Merkustu gripir hennar eru ótvírætt skírnarfontur úr marmara eftir Bertel Thorvaldsen og altaristafla eftir danska listmálarann Gustav Theodor Wegener. Fríkirkjan var einnig byggð í áföngum: Sigvaldi Bjarnason forsmiður smíðaði hana 1902-1903, tveimur árum síðar var hún lengd eftir uppdráttum Rögnvalds Á. Ólafssonar húsameistara og 1924 var byggður við hana kór. Auk altaristöflunnar, sem er máluð eftir þekktri töflu Carls H. Bloch, setur útskurður Stefáns Eiríkssonar myndskera mikinn svip á kirkjuna hið innra. Kristskirkja, reist 1926-1929, er glæsilegt byggingarlistaverk eftir Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkisins, þar sem íslensk minni, burstir og stuðlaberg, eru ofin saman við gotnesk stíleinkenni. Af ríkulegri kirkjulist ber hæst Maríulíkneski frá 14. eða 15. öld, sem gæti verið íslenskt verk, Kristsmynd eftir Campanya frá Barcelona og stóra útskorna töflu eftir ítalska myndskerann Filippo Noflaner.   

 

Viðeyjarkirkja er næstelsta kirkja landsins, teiknuð af ónafngreindum dönskum húsameistara og reist 1768-1774. Ásamt Viðeyjarstofu nýtur hún sín vel eftir vandaða aðalviðgerð sem fram fór 1987-1988. Hún skartar elstu kirkjuinnréttingum landsins, kaleik og patínu eftir Sigurð Þorsteinsson gullsmíðameistara og altarisbúnaði eftir Leif Breiðfjörð og Sigríði G. Jóhannsdóttur. Safnkirkjan í Árbæjarsafni er forn að stofni, byggð 1959-1961 úr viðum gömlu Silfrastaðakirkju í Skagafirði sem Jón Samsonarson forsmiður smíðaði 1842. Hún myndar fallega heild með gömlu bæjarhúsunum í Árbæ. Laugarneskirkja var reist á árunum 1941-1949 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Hún er heilsteypt verk, í senn formfögur og tignarleg, og ber  einkenni funksjónalismans. Árið 1989 hlaut hún velheppnaða endurbót hið innra. Neskirkja er tímamótaverk í íslenskri byggingarlistasögu, fyrsta nútímakirkjan hérlendis sem mótuð var af eiginleikum efnisins og notagildi. Eftir að hafa unnið samkeppni um kirkjuteikninguna 1943 gerði Ágúst Pálsson arkitekt teikningar að minni kirkju, án þess þó að kollvarpa hugmynd sinni. Bygging kirkjunnar, sem lauk ekki fyrr en 1957, olli miklum deilum þar sem tekist var á um hefðbundna formhugsun og módernisma. Frá þessu öllu er sagt á ítarlegan hátt í bókinni.

 

Bækurnar eru prýddar fjölda ljósmynda, sem þeir Guðmundur Ingólfsson í Ímynd og Ívar Brynjólfsson ljósmyndari Þjóðminjasafns hafa tekið, og teikningum af kirkjunum, ýmist frumteikningum eða mælingarteikningum. 

 






ISBN númer: 978-9979-66-292-1
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 278+229


Til baka
Opið mánudaga til föstudaga frá 10:00 til 16:00
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is