Gætum tungunnar
Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.
Höfundur: Guðmundur Hálfdanarson
Verkið, sem nú kemur út í annarri útgáfu, er afrakstur af viðamiklum rannsóknum höfundar á íslenskri þjóðernisstefnu og áhrifum hennar á stjórnmálaþróun hér á landi á nítjándu og tuttugustu öld. Í bókinni er fjallað um helstu forsendur sjálfstæðisbaráttunnar, ólík sjónarmið sem tókust á við mótun íslensks nútímaríkis og þær breytingar sem orðið hafa á þjóðernisvitund Íslendinga á undanförnum árum.
Guðmundur Hálfdanarson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur gengt lykilhlutverki í þeirri róttæku endurskoðun sem nú fer fram á sögu sjálfstæðisbaráttunnar og eðli íslensks þjóðernis. Bók hans er mikilvægt framlag til pólitískrar umræðu á Íslandi á tímum örra breytinga í alþjóðastjórnmálum og vaxandi hnattvæðingar.
Íslenska þjóðríkið er önnur bókin sem kemur út í ritröðinni Íslensk menning sem ReykjavíkurAkademían og Hið íslenska bókmenntafélag standa að.
Ritstjórar eru Adolf Friðriksson og Jón Karl Helgason.
ISBN númer: 978-9979-66-211-2
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 310
Til baka
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is
