Gætum tungunnar
Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.
Höfundur: Aþanasíus
Íslensk þýðing: Kristinn Ólason

Smelltu fyrir stærri mynd
Inngang ritar Einar Sigurbjörnsson.
Aþanasíus biskup í Alexandríu var einn áhrifamesti hugsuður frumkristninnar. Hann fæddist í Alexandríu undir lok þriðju aldar. Alexandría var ein mesta mennta- og menningarborg þessa tíma og snerist rökræða menntamanna oftar en ekki um tengsl kristinnar trúar og hellenskrar heiðingjamenningar. Aþanasíus var ritari Alexanders á kirkjuþinginu í Níkeu 325, sem þá var þá biskup í Alexandríu. Þremur árum síðar var Aþanasíus kjörinn biskup. Á þessum árum deildu kirkjunnar menn mjög um eðli sambandsins á milli Jesú og Guðs. Þessar deilur gerðu Aþanasíusi erfitt að sinna stöðu biskups, því að hann þurfti að dvelja í útlegð til langs tíma þegar svo vildi til að ríkisvaldið var honum ósammála í rökræðunni.
Hér birtist í íslenskri þýðingu verk Aþanasíusar Um holdgun Orðsins. Verkið er þekktasta rit Aþanasíusar, ásamt ævisögu hans um Antoníus sem hafði gífurleg áhrif á hugmyndir um meinlætalíf og munkareglur. Um holdgun Orðsins hafði einnig mikil áhrif á sjálfan grundvallarskilning kristinna manna á eðli guðdómsins og hlutverki tilbeiðslunnar. Deilurnar á fjórðu öld sem snerust um samband Jesú og Guðs kallast Aríusardeilur. Aríus var prestur í Alexandríu og var þeirrar skoðunar að Jesú Kristur hefði verið skapaður og hefði því átt sér upphaf í tíma. Guð einn var eilífur. En þetta vakti m.a. spurninguna hvort rétt væri að tilbiðja sem Guð þann sem ekki er eilífur. Níkeusamþykktin var að miklu leyti viðbragð við þessari spurningu. Niðurstaðan varð sú að Jesú og Guð væru af sama eðli (homoousios) og þótti það kveða skýrt á um sannan guðdóm sonarins. Deilunum lauk þó ekki þarna, heldur var kristinn rétttrúnaður ekki treystur fyrr en á öðru þingi 381. Samkvæmt henni er Guð einn en þrjár ólíkar persónur: Guð faðir og sonur og heilagur andi.
Í Um holdgun Orðsins smíðar Aþanasíus undirstöður þessa trúarskilnings með umfjöllun sinni um tengls Orðs Guðs og Jesú Krists. Í Gamla testamentinu er Orð Guðs sköpunarmáttur hans, hann skapaði heiminn með Orði sínu. Aþanasíus skýrir hvers vegna Orð Guðs varð síðan, samkvæmt Jóhannesarguðspjalli, að gerast maður. Guð verður að nota sama verkfæri við að frelsa heiminn og hann notaði við að skapa hann og það er orð hans. Hugmyndir Aþanasíuar höfðu svo mikil áhrif að t.d. má sjá merki þeirra í trúarjátningum og sálmum kristinna manna til þessa dags.
Þýðingunni fylgir inngangur eftir Einar Sigurbjörnsson þar sem verkið er sett í samhengi við sína tíma, en það er einnig tengt við kristna trú í nútímanum.
ISBN númer: 978-9979-66-215-0
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 210
Til baka
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is