Gætum tungunnar
Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.
Höfundur: Margir höfundar

Smelltu fyrir stærri mynd
Alþjóðlega fjármálakreppan til umfjöllunar
Hverjar eru rætur fjármálakreppunnar í heiminum? Hvernig bregst alþjóðasamfélagið við? Um það fjallar Már Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Alþjóðagreiðslubankanum í Basel, í fróðlegri grein í vorhefti Skírnis, 183. árgangs, sem kemur út í dag. Greinin ætti að auðvelda lesendum að setja íslenska bankahrunið í samband við heimskreppuna. Að undanförnu hafa margir spurt sig hvort Íslendingar lifi nú nýja Sturlungaöld. Öld harðrar valdabaráttu, sundrungar og félagslegrar upplausnar? Samlíkingin kann að virðast langsótt, en engu að síður má finna ýmsar hliðstæður sem vert er að hugleiða, einsog Guðrún Nordal, nýráðinn forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, gerir í þessu hefti. Hið merka heimildarit þrettándu aldar, Sturlunga, kemur víðar við sögu: Úlfar Bragason skrifar um lýsingu Sturlu Þórðarsonar á Flugumýrarbrennu, sem einmitt er viðfangsefni í verðlaunabók Einars Kárasonar, Ofsa, sem Dagný Kristjánsdóttir ritdæmir. Kreppan er einnig kveikjan að hugleiðingu Páls Skúlasonar um lífsgildi Íslendinga og deilugrein Stefáns Snævarrs um frjálshyggjuna, sem hann kallar sjöundu plágu Íslands, sem birt er í Skírnismálum.
Forn fræði koma einnig við sögu, með ólíkum hætti, í greinum Sveinbjarnar Rafnssonar um Jónas Hallgrímsson, Tryggva Gíslasonar um Völuspá og Bergsveins Birgissonar sem fjallar um fagurfræði dróttkvæða og tengir hana við framúrstefnur tuttugustu aldar í afar nýstárlegri grein. Eitt frægasta verk módernismans, Finnegans Wake eftir James Joyce, er umfjöllunarefni Magnúsar Sigurðssonar, en Guðni Elísson skrifar um skáldkonuna Sigurbjörgu Þrastardóttur. Í bókmenntaþættinum er birtur nýr ljóðabálkur eftir Jóhann Hjálmarsson og Einar Hreinsson ritdæmir nýútkomið verk um Grím Jónsson amtmann.
Í fyrsta sinn er myndlistarmaður Skírnis ljósmyndari, Guðmundur Ingólfsson, og fjallar Einar Falur Ingólfsson um verk hans. Guðmundur á einnig forsíðumynd Skírnis, sem sýnir stórbrotinn minnisvarða um íslensku þensluna.
ISBN númer:
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður: 254
Til baka
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is