Þú ert hér » Bókaflokkar

Gætum tungunnar

Bókaflokkar

Athugið: Vefurinn er nýr og enn vantar inn gamla titla. Við biðjumst velvirðingar á því.
Allar upplýsingar um útgefið efni má fá á skrifstofu félagsins.

Réttarkerfi Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins – Megindrættir
Höfundur: Sigurð Líndal og Skúla Magnússon


Smelltu fyrir stærri mynd

Út er komin bókin Réttarkerfi Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins – Megindrættir eftir Sigurð Líndal og Skúla Magnússon. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag. 

  

Bókin hefur að geyma stutta og aðgengilega lýsingu á meginatriðum réttarskipunar Evrópusambandsins (ESB) og Evrópska efnahagssvæðisins (EES) án þess að gert sé ráð fyrir sérstakri kunnáttu eða undirbúningi lesandans. Í umfjölluninni er tekið mið af þeim breytingum sem orðið hafa á regluverki ESB eftir gildistöku Lissabonsáttmálans þann 1. desember 2009. Áhersla er lögð á þau atriði sem lúta að stjórnskipun, grundvallarreglum og stofnunum ESB og EES. Víða er vikið að efnisreglum með dæmum, einkum reglum um innri markað ESB. 

  

Bókin hefur meðal annars verið samin með það fyrir augum að geta nýst sem kennsluefni í grunnnámskeiðum um ESB- og EES-rétt. Texti bókarinnar skiptist í meginmál og ítarefni til þess að gera hann aðgengilegri. Vísað er til valdra heimilda og ítarefnis (með áherslu á efni á íslensku) í lok hvers kafla og þar er einnig að finna spurningar til upprifjunar og umræðu, sem bæði geta nýst við kennslu og við prófundirbúning. Samhliða bókinni er gefin út sérstök réttarheimildaskrá í netútgáfu á hib.is, sem Birgir Hrafn Búason lögfræðingur vann. Í skránni er að finna meginmál allra sáttmála sem í bókinni er vísað til, auk helstu dóma Evrópudómstólsins, EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands. Saman eiga bókin og réttarheimildaskráin að mynda fullnægjandi undirstöðu fyrir upphafsnámskeið í ESB- og EES-rétti við íslenska háskóla, en geta þó einnig nýst sem hliðsjónar- og ítarefni í stjórnmálfræðilegum námskeiðum um málefni ESB og EES. 

  

Höfundarnir, Sigurður Líndal og Skúli Magnússon, hafa sinnt kennslu í lögfræði um langt árabil og gefið út bækur og margvíslegar greinar á sviði lögfræði, réttarsögu og réttarheimspeki. Sigurður var lektor við lagadeild Háskóla Íslands 1967-1972 og prófessor 1972-2001, en gegnir nú stöðu prófessors við lagadeild Háskólans á Bifröst. Skúli hefur verið kennari við lagadeild Háskóla Íslands frá 1999. Frá 2007 hefur hann að aðalstarfi gegnt stöðu ritara EFTA-dómstólsins. 

 






ISBN númer:
Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
Blaðsíður:


Til baka
Opið mánudaga til föstudaga frá 10:00 til 16:00
Skeifan 3b | Sími: 588 9060 | Fax: 581 4088 | hib@islandia.is